Carlo Ancelotti, þjálfari Real Madrid, hvetur Luis Enrique til að velja Sergio Ramos í spænska landsliðshópinn fyrir HM í Katar en hópurinn verður kynntur þann 14. nóvember.
Ramos, sem er 36 ára gamall, hefur ekkert spilað með spænska landsliðinu síðan í byrjun síðasta árs, en hann var að glíma við erfið meiðsli.
Spánverjinn hefur verið að spila frábærlega með Paris Saint-Germain í Frakklandi og ekki enn tapað leik í þeim 30 leikjum sem hann hefur spilað.
Luis Enrique, þjálfari spænska landsliðsins, setti Ramos á 55-leikmanna lista fyrir HM í Katar, en það er þó ekki búist við því að hann verði í lokahópnum. Ancelotti, sem þjálfaði Ramos hjá Real Madrid, hvetur Enrique til að velja Ramos.
„Með reynslu Ramos og gæði hans þá þarf hann að fara á HM, það er engin spurning. Hann er enn einn af bestu varnarmönnum heims,“ sagði Ancelotti.



