Marseille 0 - 5 Lyon
Mörk Lyon: Ada Hegerberg 2, Renard, Bronze og Hamraoui.
Mörk Lyon: Ada Hegerberg 2, Renard, Bronze og Hamraoui.
Það gengur hvorki né rekur hjá Fanndísi Friðriksdóttur og stöllum hennar í franska liðinu Marseille.
Marseille mætti Lyon í frönsku úrvalsdeildinni í gær og beið afhroð. Lyon er á toppi deildarinnar, hefur unnið alla sína leiki og er með eitt sterkasta lið veraldar, á meðan Marseille er á botninum og hefur ekki enn unnið deildarleik á tímabilinu.
Eftir því sem Fótbolti.net kemst næst var Fanndís í byrjunarliði Marseille og lék allan leikinn. Fanndís kom til Marseille í sumar eftir að hafa spilað frábærlega með Breiðabliki og á EM með Íslandi.
Athugasemdir