Ronald Koeman var rekinn frá Everton þann 23. október síðastliðinn eftir slaka byrjun á tímabilinu.
Koeman er enn atvinnulaus, en það er ekki vegna áhugaleysis á honum. Mikil eftirspurn er eftir kröftum hans. Hann mun þó taka þann tíma sem hann þarf áður en hann snýr aftur.
„Ég byrjaði á einhverju hjá Everton sem ég villdi klára á góðan hátt. Þess vegna varð ég gríðarlega vonsvikinn. Ég verð samt að vera raunsær," sagði Koeman við Liverpool Echo.

„Ég þarf að komast yfir þessi vonbrigði áður en ég byrja á einhverju nýju. Þess vegna hef ég ekki tekið neinu tilboði."
„Ég hef fengið tilboð frá tveimur úrvalsdeildarliðum og frá nokkrum liðum annars staðar í Evrópu."
Athugasemdir