Wayne Rooney lagði landsliðsskóna á hilluna í september og fer því ekki á HM í Rússlandi á næsta ári.
Mikið hefur verið rætt um möguleika Rooney á að taka skóna af hillunni og fara með á HM. Sú umræða náði hámarki þegar fyrirliðinn fyrrverandi skoraði þrennu gegn West Ham í miðri viku.
Mikið hefur verið rætt um möguleika Rooney á að taka skóna af hillunni og fara með á HM. Sú umræða náði hámarki þegar fyrirliðinn fyrrverandi skoraði þrennu gegn West Ham í miðri viku.
Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englendinga, segir Rooney vera búinn að taka sína ákvörðun. Þá segir hann einnig tímabært að leyfa yngri leikmönnum að spreyta sig og öðlast reynslu.
„Rooney er búinn að gera sína ákvörðun ljósa. Við vorum að skoða að taka hann með til Rússlands en eftir að hann lagði skóna á hilluna höfum við þróast sem lið," sagði Southgate við BBC.
„Við teljum að það sé mikilvægt að leyfa yngri leikmönnum að spreyta sig og öðlast mikilvæga reynslu."
Athugasemdir