Wijnaldum settur í miðvörð
Georginio Wijnaldum var í nýju hlutverki í gær þegar Liverpool burstaði Brighton í ensku úrvalsdeildinni, 5-1.
Wijnaldum, sem er miðjumaður, spilaði í hjarta varnarinnar ásamt Dejan Lovren og Emre Can.
„Stjórinn hafði ekki marga möguleika og valdi mig og Emre. Fyrri hálfleikurinn var erfiður vegna þess að ég vissi ekki alltaf hvað ég átti að gera," sagði Wijnaldum eftir leikinn.

„Við æfum degi fyrir leik, en Jurgen (Klopp) sagði mér ekki neitt, hann valdi bara liðið og sagði að ég yrði í vörninni. Ég er leikmaður sem getur spilað í nokkrum stöðum, en aldrei í vörninni."
Wijnaldum komst vel frá sínu eins og allt lið Liverpool í gær.
What a player Gini Wijnaldum is. He was an Attacking Mid when we signed him, today he played CB. Doesn't complain, gets on with the job and does it with a smile on his face.
— LFC Stanley House (@LFCStanleyHouse) December 2, 2017
Athugasemdir