Fotbolti.net
03.12.19 - 14:10
Elvar Geir Magnússon

Walcott klár í grannaslaginn - Silva brattur á fréttamannafundi

Theo Walcott.

Theo Walcott.

Canon

Mynd: Getty Images

Marco Silva, stjóri Everton, sat fyrir svörum á fréttamannafundi í dag og tilknnti meðal annars að Theo Walcott væri leikfær fyrir grannaslaginn gegn Liverpool sem fram fer annað kvöld.

Walcott lék ekki í tapleik Everton gegn Leicester á sunnudag vegna smávægilegra meiðsla.
Seamus Coleman og Fabian Delph eru báðir áfram á meiðslalistanum.

„Við þurfum að mæta þangað og nálgast verkefnið af hugrekki, eins og við gerðum síðasta tímabil. Það er langt síðan við unnum á Anfield. Þetta er frábært tækifæri til að breyta því. Það gæti haf mjög jákvæð áhrif," segir Silva.

Staða Silva er í óvissu en Everton er aðeins tveimur stigum frá fallsæti á meðan Liverpool hefur örugga forystu á toppnum.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.