Fotbolti.net
03.12.21 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson

Þýskaland um helgina - Stórleikur Dortmund og Bayern

Erling Braut Haaland er mættur aftur á völlinn. Getur hann strítt Bayern?

Erling Braut Haaland er mættur aftur á völlinn. Getur hann strítt Bayern?

Canon

Mynd: EPA

Það er heldur betur veisla í þýsku deildinni um helgina en Borussia Dortmund og Bayern München eigast við í stærsta leik ársins klukkan 17:30 á morgun.
RB Leipzig, sem hefur spilað langt undir getu á þessari leiktíð, er með 18 stig í 8. sæti deildarinnar og mætir Union Berlin í fyrsta leik umferðarinnar í kvöld.

Á morgun eru sex leikir en hæst ber að nefna leik Borussia Dortmund og Bayern München klukkan 17:30. Þessi lið hafa barist hart um titilinn síðustu ár og er nú aðeins eins stigs munur á liðunum eftir þrettán umferðir. Bayern er á toppnum með 31 stig en Dortmund í öðru með 30 stig.

Alfreð Finnbogason og félagar í Augsburg spila þá við nýliða Bochum, sama dag, klukkan 14:30.

Föstudagur:
19:30 Union Berlin - RB Leipzig

Laugardagur:
14:30 Leverkusen - Greuther Furth
14:30 Hoffenheim - Eintracht Frankfurt
14:30 Mainz - Wolfsburg
14:30 Augsburg - Bochum
14:30 Arminia Bielefeld - Köln
17:30 Dortmund - Bayern

Sunnudagur:
14:30 Stuttgart - Hertha
16:30 Gladbach - Freiburg

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Dortmund10+1024
2Bayern10+2022
3Freiburg10+1122
4RB Leipzig10+1821
5Leverkusen10+719
6Werder9+215
7Frankfurt10-415
8Stuttgart10013
9Elversberg10-213
10Hoffenheim10-212
11Hamburger9-1012
12Mainz9-110
13Köln10-410
14Paderborn10-710
15Augsburg909
16Schalke 0410-67
17Union Berlin10-187
18Gladbach10-144
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.