
Gabriel Jesus og Alex Telles verða ekki meira með Brasilíu á HM eftir að hafa meiðst í síðasta leik riðilsins gegn Kamerún í gær.
Þeir meiddust báðir á hægra hné og fóru í myndatöku í morgun. Brasilíska knattspyrnusambandið greindi frá því að það væri ómögulegt fyrir þá að taka frekari þátt á mótinu.
Jesus og Telles voru í fyrsta sinn í byrjunarliðinu á mótinu gegn Kamerún en TIte þjálfari Brasilíu stillti upp varaliðinu í leiknum.
Brasilía mætir Suður Kóreu í 16 liða úrslitum á mánudaginn.
Athugasemdir