Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 04. janúar 2020 16:48
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið dagsins: Rashford á bekknum
Mynd: Getty Images
Síðustu leikir dagsins í FA bikarnum fara að hefjast og hafa byrjunarliðin verið staðfest.

Það er einn úrvalsdeildarslagur á dagskrá þar sem Wolves tekur á móti Manchester United. Bæði lið hvíla lykilmenn í leiknum.

Benny Ashley-Seal byrjar sem fremsti maður í liði Úlfanna og eru menn á borð við Joao Moutinho og Raul Jimenez geymdir á bekknum. Ruben Neves, Matt Doherty og Adama Traore byrja þó allir.

Ole Gunnar Solskjær gefur Marcus Rashford hvíld en Juan Mata og Tahith Chong fá báðir tækifæri með byrjunarliðinu.

Þá er hægt að finna Sergio Aguero, David Silva og nafna hans Bernardo í byrjunarliði Manchester City sem tekur á móti D-deildarliði Port Vale.

Brendan Rodgers teflir nánast fram varaliði er Leicester fær Wigan í heimsókn. Ben Chilwell og Harvey Barnes eru þó í byrjunarliðinu.

Eddie Howe ætlar ekki að taka stóra sénsa með Bournemouth og mætir til leiks með sterkt byrjunarlið gegn Luton, sem vermir botnsæti Championship deildarinnar.

Wolves: Ruddy, Dendoncker, Coady, Kilman, Doherty, Saiss, Neves, Vinagre, Traore, Ashley-Seal, Neto
Varamenn: Patricio, Bennett, Jimenez, Jonny, Moutinho, Otasowie, Rasmussen

Man Utd: Romero, Young, Lindelöf, Maguire, Williams, Pereira, Matic, Chong, Mata, James, Greenwood
Varamenn: Grant, Dalot, Jones, Wan-Bissaka, Fred, Gomes, Rashford



Man City: Bravo, Cancelo, Stones, Harwood-Bellis, Angelino, Gundogan, D. Silva, Zinchenko, Foden, B. Silva, Aguero
Varamenn: Carson, Walker, Garcia, Doyle, Sterling, Mahrez, Jesus



Leicester: Ward, Justin, Morgan, Benkovic, Chilwell, Mendy, Choudhury, Praet, Gray, Albrighton, Barnes
Varamenn: Jakupović, Söyüncü, Fuchs, Ndidi, Maddison, Pérez, Iheanacho.



Bournemouth: Travers, Francis, Mepham, Simpson, Rico, H. Wilson, Surman, Billing, Fraser, Stanislas, Solanke
Varamenn: Ramsdale, S. Cook, Lerma, Kilkenny, Dobre, C. Wilson, Surridge
Athugasemdir
banner
banner
banner