04.02.25 - 22:07
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Burnley vann og hélt hreinu níunda leikinn í röð - Colback hetja QPR

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Burnley er komið upp í annað sæti ensku B-deildarinnar eftir að hafa lagt Oxford United að velli, 1-0, á Turf Moor. Burnley var að halda hreinu níunda deildarleikinn í röð.
Scott Parker og lærisveinar hans í Burnley hafa sannað sig sem langbesta varnarlið deildarinnar.
Liðið hefur aðeins fengið á sig níu mörk í 31 leik á tímabilinu og haldið hreinu í 21 leik.
Í kvöld hélt liðið hreinu níunda leikinn í röð og tókst að vinna leikinn með hjálpð Michal Helik, leikmanns Oxford, sem skoraði sjálfsmark á 33. mínútu.
Burnley er komið upp í 2. sæti deildarinnar með 61 stig, nú tveimur frá toppnum.
QPR vann á meðan Blackburn Rovers, 2-1. Michael Frey kom heimamönnum yfir á 5. mínútu en Tyrhys Dolan jafnaði á 53. mínútu úr vítaspyrnu eftir að Callum Brittain var tekinn niður í teignum.
Englendingurinn Jack Colback gerði sigurmarkið þegar stundarfjórðungur var eftir af leiknum.
Blackburn er í 5. sæti með 45 stig en QPR í 13. sæti með 41 stig.
Arnór Sigurðsson var ekki með Blackburn Rovers, en hann er að snúa til baka úr meiðslum og ætti bráðlega að vera klár í slaginn.
Burnley 1 - 0 Oxford United
1-0 Michal Helik ('33 , sjálfsmark)
QPR 2 - 1 Blackburn
1-0 Michael Frey ('5 )
1-1 Tyrhys Dolan ('53 , víti)
2-1 Jack Colback ('76 )

Championship - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Middlesbrough | 13 | +13 | 28 |
| 2 | Birmingham | 14 | +13 | 26 |
| 3 | Swansea | 14 | +5 | 26 |
| 4 | Stoke City | 14 | +5 | 26 |
| 5 | West Brom | 14 | +5 | 25 |
| 6 | Southampton | 14 | +15 | 24 |
| 7 | Wolves | 13 | +7 | 24 |
| 8 | West Ham | 13 | +15 | 22 |
| 9 | Sheffield Utd | 14 | +3 | 22 |
| 10 | Portsmouth | 14 | +3 | 22 |
| 11 | QPR | 14 | +5 | 21 |
| 12 | Norwich | 14 | +3 | 18 |
| 13 | Millwall | 14 | -1 | 18 |
| 14 | Blackburn | 14 | -2 | 18 |
| 15 | Bristol City | 13 | -2 | 18 |
| 16 | Bolton | 14 | -7 | 17 |
| 17 | Lincoln City | 14 | -10 | 15 |
| 18 | Cardiff City | 13 | -1 | 14 |
| 19 | Wrexham | 13 | -4 | 14 |
| 20 | Watford | 14 | -10 | 14 |
| 21 | Charlton Athletic | 14 | -11 | 14 |
| 22 | Burnley | 14 | -8 | 10 |
| 23 | Derby County | 14 | -18 | 7 |
| 24 | Preston NE | 14 | -18 | 5 |