Fotbolti.net
04.03.21 - 19:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Byrjunarlið Liverpool og Chelsea: Alisson og Fabinho byrja

Alisson snýr aftur í markið hjá Liverpool.

Alisson snýr aftur í markið hjá Liverpool.

Canon

Mynd: Getty Images

Það er stórleikur í ensku úrvalsdeildinni núna klukkan 20:15 þar sem ríkjandi Englandsmeistarar Liverpool taka á móti Chelsea.

Bæði þessi lið eru í Meistaradeildarbaráttu. Chelsea er í fimmta sæti, einu stigi frá fjórða sætinu, og Liverpool er í sjötta sæti, einu stigi á eftir Chelsea. Liverpool hefur unnið síðustu fjóra deildarleiki sína gegn Chelsea.
Byrjunarliðin eru klár. Alisson kemur aftur í markið hjá Liverpool eftir að hann missti af síðasta leik í kjölfarið á andláti föður hans. Fabinho er einnig kominn aftur inn í liðið og hann byrjar í miðverði ásamt Tyrkjanum Ozan Kabak. Portúgalinn Diogo Jota byrjar þá á bekknum hjá meisturunum.

Chelsea gerði jafntefli gegn Manchester United í síðasta deildarleik sínum. Frá þeim leik gerir Thomas Tuchel þrjár breytingar. Reece James, Jorginho og Timo Werner koma inn í liðið fyrir Callum Hudson-Odoi, Mateo Kovacic og Olivier Giroud.

Byrjunarlið Liverpool: Alisson, Alexander-Arnold, Fabinho, Kabak, Robertson, Wijnaldum, Jones, Thiago, Mane, Firmino, Salah.
(Varamenn: Adrian, Milner, Keita, Oxlade-Chamberlain, Jota, Shaqiri, Origi, R Williams, N Williams)

Byrjunarlið Chelsea: Mendy, Azpilicueta, Christensen, Rudiger, James, Jorginho, Kante, Chilwell, Ziyech, Mount, Werner.
(Varamenn: Arrizabalaga, Alonso, Pulisic, Zouma, Kovacic, Giroud, Hudson-Odoi, Havertz, Emerson)

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City9+1021
2Arsenal8+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool8+315
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.