Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 04. mars 2021 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Hlynur Freyr með sitt fyrsta mark fyrir Bologna
Hlynur Freyr Karlsson.
Hlynur Freyr Karlsson.
Mynd: Hulda Margrét
Hlynur Freyr Karlsson, strákur fæddur 2004, skoraði sitt fyrsta mark fyrir Bologna um síðustu helgi.

Hann og Gísli Gottskálk Þórðarson spiluðu báðir með U17 liði Bologna í sigri gegn Sassuolo.

Leikurinn endaði með 3-5 sigri Bologna og skoraði Hlynur Freyr á 75. mínútu leiksins.

Markið má sjá hér neðst í fréttinni.

Bæði Hlynur Freyr og Gísli Gottskálk eru á láni hjá Bologna frá Breiðablik. Ítalska félagið er með kauprétt á leikmönnunum. Bologna er orðið mikið Íslendingafélag en 19 ára gamli miðjumaðurinn Andri Fannar Baldursson leikur með aðalliði félagsins.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner