mán 04. maí 2020 11:00
Magnús Már Einarsson
Bruno Fernandes mikill aðdáandi Iniesta
Mynd: Getty Images
Bruno Fernandes, miðjumaður Manchester United, segir að Andres Iniesta sé sá leikmaður sem hann hafi litið mest upp til í gegnum tíðina.

Fernandes byrjaði vel hjá Manchester United eftir að hann kom frá Sporting Lisabon í janúar áður en hlé var gert í fótboltanum í mars.

„Sá leikmaður sem ég hef gaman að því að horfa á og fylgjast með er Iniesta því Iniesta er blanda á milli áttu og tíu. Ég tel að ég geti verið meiri blanda af leikmanni númer átta og tíu," sagði Fernandes.

„Hann er náungi sem vill alltaf hafa boltanum, vill alltaf taka áhættur og ég tel að Iniesta hafi verið einn sá besti í heimi."

„Það er ótrúlegt að Iniesta hafi lokið ferlinum án þess að hafa unnið Gullboltann. Miðað við alla titlana sem hann vann þá er erfitt fyrir mig að skilja þetta."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner