Lucas Digne, bakvörður Everton, segir að félagið eigi að setja stefnuna á að ná sæti í Meistaradeildinni á næstu árum undir stjórn Carlo Ancelotti.
„Markmiðið er klárlega að ná Evrópusæti. Við þurfum að enda mjög ofarlega og ef við náum Evrópusæti þá er það best fyrir félagið og stuðningsmennina," sagði Digne.
„Markmiðið er klárlega að ná Evrópusæti. Við þurfum að enda mjög ofarlega og ef við náum Evrópusæti þá er það best fyrir félagið og stuðningsmennina," sagði Digne.
„Við erum að byggja eitthvað og við erum að búa til verkefni. Við erum með mjög góða leikmenn."
„Eftir nokkur ár verða þeir búnir að kaupa nokkra leikmenn og fjárfesta mikið."
„Við verðum að enda í topp fjórum eða topp fimm og komast í Meistaradeildina."
Athugasemdir