Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mán 04. maí 2020 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Thiago um Coutinho: Hann er magnaður leikmaður
Thiago Alcantara
Thiago Alcantara
Mynd: Sjónvarp Símans
Spænski landsliðsmaðurinn Thiago Alcantara er mættur á æfingasvæði Bayern München en félagið undirbýr sig undir lokakaflann í þýsku deildinni.

Það styttist í að þýska deildin fer að rúlla á ný eftir langt hlé vegna kórónaveirunnar en þýsku liðin eru byrjuð að æfa.

Thiago, sem er lykilmaður í liði Bayern, ræddi um brasilíska leikmanninn Philippe Coutinho sem er á láni frá Barcelona en hann vonast til þess að hann verði áfram í Þýskalandi.

„Ég þekki hann mjög vel og hann er frábær. Ég hef horf á hann spila frá því hann var 12 ára. Ég spilaði á móti honum í Brasilíu og elskaði hann. Hann er allur pakkinn og mér finnst gaman að spila með leikmönnum sem eru í hæsta gæðaflokki og hann er algert undur," sagði Thiago.

„Hann er frábær náungi og leggur hart að sér. Auk þess er hann með tækni sem er ómögulegt að eiga við. Leikmenn fara alltaf í gegnum góða og slæma kafla. Við vonum að hann verði hérna á næsta tímabili," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner