Í gærkvöldi voru birt úrslit úr tveimur æfingaleikjum sem fram fóru í gær. Þá sigraði KB lið KFB 7-4 í miklum markaleik í Breiðholti
Sjá einnig:
Æfingaleikir: Stjarnan og Ægir sigruðu
Sjá einnig:
Æfingaleikir: Stjarnan og Ægir sigruðu
Fótbolta.net bárust upplýsingar um þriðja æfingaleikinn í gegnum tölvupóst ([email protected]). Sá leikur fór fram á Helluvelli og tóku heimamenn í KFR á móti Hvergerðingum í Hamri.
Staðan var 0-0 í hálfleik en í seinni hálfleik komu þrjú mörk. Tvö þeirra skoruðu heimamenn og sigruðu þeir því leikinn 2-1. Ekki fengust upplýsingar um markaskorara gestanna.
KFR 2-1 Hamar
Markaskorarar KFR: Guðmundur Gunnar Guðmundsson og Aron Daníel Arnalds.
KB 7 - 4 KFB
Mörk KFB: Sigurður Bjarni Jónsson, Guðlaugur Orri Stefánsson, Garðar Geir Hauksson og Fannar Eðvaldsson (víti)
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir