Bruno Fernandes, miðjumaður Manchester United, segist ekki geta beðið eftir að spila með Paul Pogba hjá félaginu.
Bruno Fernandes kom til Manchester United í janúar en vegna meiðsla Pogba náðu þeir félagar ekki að spila saman áður en hlé var gert á ensku úrvalsdeildinni vegna kórónaveirunnar.
Boltinn byrjar að rúlla aftur á Englandi 17. júní og Fernandes getur ekki beðið eftir að spila með Pogba.
„Auðvitað. Ég tel að Paul sé einn af bestu leikmönnunum í Manchester og í heiminum," sagði Bruno Fernandes.

„Hann hefur verið mikið meiddur. Það er stórkostlegt tækifæri að fá að spila við hlið hans því að þú vilt spila með bestu leikmönnunum."
Athugasemdir