Andreas Granqvist, fyrirliði Svía, ætlar að spila gegn Englandi í 8-liða úrslitum HM á laugardag þrátt fyrir að Sofie eiginkona hans eigi von á þeirra öðru barni.
Settur dagur hjá Sofie var í gær en á sama tíma var Granqvist á sínum stað í vörninni í 1-0 sigri Svíþjóðar á Sviss.
Granqvist gæti skotist heim frá Rússlandi ef barnið kemur fljótlega en hann segir ekki koma til greina að missa af leiknum á laugardaginn.
„Ég ætla að vera áfram. Eiginkona mín er mjög sterk persóna og við vissum stöðuna áður en ég kom hingað. Ekkert hefur gerst ennþá. Ef ég verði í stöðu til að fljúga snöggt heim þá gæti ég gert það. Sama hvað gerist þá missi ég ekki af 8-liða úrslitunum," sagði Granqvist.
Fabian Delph, leikmaður Englendinga, snýr aftur til Rússlands í dag eftir að þriðja barn hans kom í heiminn í Englandi í gær.
Athugasemdir