Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 04. júlí 2018 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Svona eru 8-liða úrslitin - Föstudagur og laugardagur
Rússland og Króatía mætast í Sochi.
Rússland og Króatía mætast í Sochi.
Mynd: Getty Images
Í gær kom það í ljós að fullu hvaða átta lið það eru sem munu spila um Heimsmeistaratitilinn, 8-liða úrslitin eru komin á hreint.

England vann Kólumbíu í gær eftir vítaspyrnukeppni. Englendingar mæta Svíum í 8-liða úrslitunum. England og Svíþjóð spila á laugardag, en fyrr um daginn spilar Króatíu við gestgjafa Rússlands.

Á föstudaginn spilar Frakkland við Úrúgvæ og Brasilía gegn Belgíu mætast í hinum leiknum.

HM er í fríi í dag og á morgun en veislan heldur áfram á föstudaginn.

Leikirnir í 8-liða úrslitum:
Föstudagur
14:00 Úrúgvæ - Frakkland (Nizhniy Novgorod)
18:00 Brasilía - Belgía (Kazan)

Laugardagur
14:00 Svíþjóð - England (Samara)
18:00 Rússland - Króatía (Sochi)
Athugasemdir
banner
banner