Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fim 04. júlí 2019 09:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: Augsburger Allgemeine 
Alfreð á undan áætlun
Mynd: Getty Images
Alfreð Finnbogason er að ná sér góðum eftir uppskurð á kálfa.

Martin Schmidt, knattspyrnustjóri Augsburg, segir Alfreð á undan áætlun í endurhæfingu sinni.

„Alfreð er í endurhæfingu eftir aðgerðina og þetta lítur allt mjög vel út en hann er tíu dögum á undan áætlun,“ sagði Schmidt í gær um stöðuna á Alfreð.

Augsburg mætir Borussia Dortmund í fyrstu umferð þýsku Bundesliga um miðjan ágúst.

Alfreð á eitt ár eftir af samningi sínum við Augsburg.
Athugasemdir
banner
banner