Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   fim 04. júlí 2019 22:02
Sverrir Örn Einarsson
Búi: Sóknarlega ekki alveg í takt
Búi Vilhjálmur Guðmundsson, þjálfari Hauka.
Búi Vilhjálmur Guðmundsson, þjálfari Hauka.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukar sóttu stig á Nettóvöllinn þegar liðið heimsótti Keflavík suður með sjó í kvöld.

Eftir heldur tíðindalítinn fyrri hálfleik náði Keflavík forystu þegar Dagur Ingi Valsson skoraði á 41, mínútu leiksins og voru það hálfleikstölur. Það var svo þegar komið var fram í uppbótartíma að Haukar fengu dæmda vítaspyrnu sem Ásgeir Þór Ingólfsson skoraði úr og tryggði gestunum stig.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  1 Haukar

„Já klárlega, í fyrri hálfleik vorum við algjörlega ofan á í baráttunni um hvern einasta bolta. Sóknarlega kannski ekki alveg í takt en í seinni hálfleik skánuðum við klárlega þar," Búi Vilhjálmur Guðmundsson, þjálfari Hauka, um frammistöðu sinna manna í dag.

Félagaskiptaglugginn opnaði í byrjun vikunar. Haukar hafa nú þegar bætt við sig tveimur leikmönnum og það er von á fleiri breytingum.

„Já við erum bara eins og margir aðrir að leita okkur að styrkingu og hjá okkur þurftu tveir að hætta knattspyrnu, annar þeirra tímabundið og svo eru tveir að fara í skóla þannig að bara til að halda hóp þurfum við að bæta svolítið í.“

Sagði Búi Vilhjálmur Guðjónsson þjálfari Hauka en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner