Lærisveinar Guðjóns Þórðarson í NSÍ Runavík eru úr leik í Evrópudeildinni eftir markalaust jafntefli gegn Ballymena United frá Norður-Írlandi í kvöld.
Fyrri leikurinn í Norður-Írlandi endaði með 2-0 sigri Ballymena og var því brekkan brött fyrir NSÍ fyrir seinni leikinn á heimavelli.
NSÍ átti var sterkari aðilinn í leiknum í kvöld og átti fleiri marktilraunir en engin þeirra rataði í netið og markalaust jafntefli niðurstaðan.
NSÍ getur núna einbeitt sér að að deildinni heima fyrir, en liðið er þar í öðru sæti, þremur stigum frá toppnum. NSÍ á leik til góða á topplið Víkings í Götu.
Ballymena mætir Malmö frá Svíþjóð í næstu umferð. Með Malmö leikur landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason.
Athugasemdir