Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 04. júlí 2019 05:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ísland í dag - Valur með Patrick innanborðs fær KA í heimsókn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í dag hefst tólfta umferð Pepsi Max-deildarinnar. Valur, sem styrkti sig heldur betur á dögunum með því að fá Patrick Pedersen aftur til félagsins, fær KA í heimsókn á Origo völlinn. Pedersen var markahæstur í Pepsi deildinni á síðustu leiktíð.

Liðin eru í 6. og 8. sæti deildarinnar, Valur hefur stigi meira en KA. KA vann fyrri leik liðanna í sumar, 1-0 á Greifavellinum á Akureyri.

Í A-riðli 4. deildar hefur Björninn unnið alla sína leiki og mætir í dag botnliði Ísbjarnarins. Þá mætast liðin í 2. og 3. sæti þegar Ýmir heimsækir Árborg á Selfoss.

Inkasso deildin er í fullum gangi og hefst tíunda umferðin með tveimur leikjum í dag. Keflavík fær Hauka í heimsókn og Leiknir R. fær topplið Fjölnis í heimsókn. Fjölnir getur náð fimm stiga forskoti á toppi deildarinnar með sigri.

Tíunda umferðin hefst einnig í 2. deild karla í dag. Dalvík/Reynir mætir í Breiðholtið og spilar gegn ÍR, Þróttur V. fer alla leið í Garðinn og mætir þar Víði og Kári tekur á móti Tindastóli í Akraneshöllinni.

Pepsi Max-deild karla
18:00 Valur-KA (Origo völlurinn)

Inkasso deildin - 1. deild karla
19:15 Keflavík-Haukar (Nettóvöllurinn)
19:15 Leiknir R.-Fjölnir (Leiknisvöllur)

2. deild karla
17:30 ÍR-Dalvík/Reynir (Hertz völlurinn)
19:15 Víðir-Þróttur V. (Nesfisk-völlurinn)
19:15 Kári-Tindastóll (Akraneshöllin)

4. deild karla - A-riðill - 4. deild karla
19:00 Ísbjörninn-Björninn (Kórinn - Gervigras)
20:00 Árborg-Ýmir (JÁVERK-völlurinn)
20:00 Vatnaliljur-SR (Fagrilundur - gervigras)
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner