Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 04. júlí 2019 07:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Markahæsti leikmaður Championship deildarinnar framlengir við Norwich
Mynd: Getty Images
Teemu Pukki skoraði 29 mörk fyrir Norwich í ensku Championship deildinni þegar liðið sigraði deildina á liðinni leiktíð.

Í gær skrifaði hann svo undir nýjan þriggja ára samning við félagið. Pukki kom frá Bröndby fyrir leiktíðina og slóg rækilega í gegn.

Pukki, sem er finnskur, hefur spilað fyrir Sevilla og Schalke auk Celtic á ferli sínum.

Pukki er 29 ára og eru miklar vonir bundnar við að hann skili mörkum fyrir Norwich á næstu leiktíð þar sem liðið er nú komið í ensku úrvalsdeildina.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner