Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fim 04. júlí 2019 20:25
Egill Sigfússon
Óli Stefán: Áttum ekki breik í þá
Óli Stefán Flóventsson þjálfari KA
Óli Stefán Flóventsson þjálfari KA
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Valur vann KA 3-1 í 12. umferð Pepsí Max-deildar karla á Origo vellinum í kvöld. Óli Stefán Flóventsson þjálfari KA sagði að þeir hefðu hreinlega ekki átt séns í Val í kvöld.

Lestu um leikinn: Valur 3 -  1 KA

„Stundum í þessu starfi verður maður bara að viðurkenna það að við áttum ekki séns. Við héldum vel í við þá í fyrri hálfleik og hugsanlega hefðum við getað nýtt okkar sénsa betur. Þegar þeir finna taktinn og við föllum og verðum þungir áttum við ekki séns."

KA er búið að tapa þrem leikjum í röð og Óli viðurkennir að hann er farinn að hafa áhyggjur af spilamennsku liðsins.

„Ég reyni að horfa í það sem við gerum inná vellinum og ég hef áhyggjur núna, við erum búnir að fá á okkur 10 mörk í þremur leikjum sem er ólíkt okkur. Það er okkar þjálfarana að finna lausn á því."

Aðspurður hvort KA ætli að styrkja sig í félagsskiptaglugganum sagði Óli að það væri ekkert í hendi og var heldur fúll með spurninguna.

„Þetta er eiginlega spurning sem ég er farinn að fá í hverju einasta viðtali og það er alltaf sama svarið. Við erum ánægðir með okkar hóp og það er ekkert sem við erum að skoða í þeim málum og við ætlum bara að vinna með það sem við höfum byrjað með frá upphafi."
Athugasemdir
banner
banner
banner