Mario Pasalic framlengdi í gær samning sinn við Chelsea. Hann gekk í raðir félagsins árið 2014 en hefur aldrei spilað leik fyrir félagið.
Hann kom frá Hajduk Split í Króatíu en hefur síðan þá verið á láni hjá fimm félögum. Hann var á láni hjá Atalanta á síðustu leiktíð. Atalanta endaði í þriðja sæti Seríu A.
Hann kom frá Hajduk Split í Króatíu en hefur síðan þá verið á láni hjá fimm félögum. Hann var á láni hjá Atalanta á síðustu leiktíð. Atalanta endaði í þriðja sæti Seríu A.
Pasalic hefur spilað tíu landsleiki fyrir Króatíu og var í hópnum í síðasta landsleikjaglugga.
Pasalic, sem er 24 ára, er nú samningsbundinn Chelsea út tímabilið 2021-22.
Athugasemdir