Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 04. júlí 2019 13:52
Elvar Geir Magnússon
Patrick Pedersen í byrjunarliði Vals í kvöld
Mættur aftur á Hlíðarenda.
Mættur aftur á Hlíðarenda.
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Patrick Pedersen fer beint inn í byrjunarlið Vals gegn KA í kvöld samkvæmt heimildum Fótbolta.net.

Patrick gekk aftur til liðs við Val í vikunni eftir dvöl hjá Sheriff í Moldavíu.

Þessi öflugi Dani hefur skorað 47 mörk í 72 leikjum á ferli sínum með Val en hann skoraði sautján mörk þegar liðið vann Pepsi-deildina í fyrra.

Stuðningsmenn Vals bíða með mikilli eftirvæntingu eftir endurkomu Patrick en leikurinn á Origo-vellinum hefst klukkan 18:00 í kvöld.

Hér að neðan má sjá kynningarmyndband frá Val um Patrick.

12. umferð Pepsi Max-deildarinnar er ansi dreifð:

fimmtudagur 4. júlí
18:00 Valur-KA (Origo völlurinn)

föstudagur 5. júlí
19:15 Stjarnan-Grindavík (Samsung völlurinn)

laugardagur 6. júlí
14:00 ÍA-Fylkir (Norðurálsvöllurinn)
16:00 ÍBV-KR (Hásteinsvöllur)

sunnudagur 7. júlí
19:15 Breiðablik-HK (Kópavogsvöllur)

mánudagur 8. júlí
19:15 FH-Víkingur R. (Kaplakrikavöllur)

Patrick er mættur í Draumaliðsdeild Eyjabita. Kemst hann í þitt lið?.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner