Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 04. júlí 2019 14:08
Magnús Már Einarsson
Southampton vill losna við markverði - McCarthy til Liverpool?
Fraser Forster hefur verið í basli undanfarið.
Fraser Forster hefur verið í basli undanfarið.
Mynd: Getty Images
Southampton er tilbúið að hlusta á tilboð í markverðina Alex McCarthy og Fraser Forster samkvæmt frétt Sky Sports í dag.

Hinn 31 árs gamli Forster lék einungis einn leik í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og var lengst af þriðji markvörður Southampton.

McCarthy var aðalmarkvörður um tíma en missti síðan stöðuna til Angus Gunn.

Forster og McCarthy eru báðir á meðal launahæstu leikmanna Southampton og því vill félagið selja þá.

McCarthy hefur verið orðaður við Liverpool þar sem varamarkvörðurinn Simon Mignolet gæti verið á förum. Aston Villa hefur einnig sýnt McCarthy áhuga.
Athugasemdir
banner
banner
banner