Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
banner
   mán 04. júlí 2022 21:46
Haraldur Örn Haraldsson
Gústi Gylfa: Skemmtilegar síðustu 10 en leiðinlegt fram að því
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ágúst Gylfason þjálfari Stjörnunnar náði í 1-1 jafntefli á útivelli gegn FH í kvöld. Stjarnan jafnaði á lokamínútum leiksins og hefði mögulega getað tekið sigurinn úr færunum sem þeir fengu í lok leiks.


Lestu um leikinn: FH 1 -  1 Stjarnan

„Skemmtilegar síðustu 10 en leiðinlegt fram að því fannst mér. Bæði lið voru í erfiðleikum í 80 mínútur, við áttuðum okkur á því að við vorum að fara tapa þessum leik hérna í lokin. FH leiddi með einu marki eftir fast leikatriði og þá áttuðu menn sig á því og við keyrðum þetta í gang og uppskárum eitt stig og fullt fullt af færum, stangaskot og þetta hefði alveg getað dottið okkar megin en við tökum þetta eina stig. Þannig horfði ég á leikinn."

Það var mikið af feilsendingum og gæðaleysi oft á tíðum í þessum leik og liðin áttu erfitt með að spila sinn leik.

„Bæði lið vilja spila boltanum en það var lítið um það þetta var mikið af háloftaspyrnum og við náðum ekki okkar leik sem við erum vanir að gera fyrr en á 80. mínútu þá fórum við að sækja hratt á þá og uppskárum góð færi. Þannig að það var svona hvernig ég horfði á leikinn heilt yfir."

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan þar tala Ágúst nánar um komandi leiki.


Slapp
banner
banner