Fotbolti.net
04.07.22 - 21:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Heimir Guðjóns: Heppnir að sleppa með jafnteflið

Heimir Guðjóns: Heppnir að sleppa með jafnteflið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

KA og Valur skildu jöfn 1-1 í elleftu umferð Bestu deildarinnar á Akureyri í kvöld. Valur var heppið að ná stigi einum færri síðustu 20 mínúturnar.

Fótbolti.net ræddi við Heimi Guðjónsson þjálfara Vals eftir leikinn. Hvernig er tilfinningin?

„Beggja blands, mér fannst við hafa góð tök á þessum leik, komumst sanngjarnt yfir. Gerum mistök sem eru þess valdandi að við missum mann af velli."

„KA eru með gott lið og þeir elfdust við það og á endanum getum við verið nokkuð heppnir að sleppa með jafnteflið," sagði Heimir.

Guðmundur Andri Tryggvason fékk að líta rauða spjaldið í stöðunni 1-0 þegar hann sló til Kristijan Jajalo í marki KA. Heimir treystir því að Erlendur dómari hafi dæmt rétt.

„Hann danglar eitthvað í Jajalo, Elli var vel staðsettur og hann var alveg öruggur á þessari ákvörðun."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.