Fotbolti.net
04.07.22 - 11:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jói útherji

Kessie til Barcelona (Staðfest) - Fjögurra ára samningur

Kessie til Barcelona (Staðfest) - Fjögurra ára samningur
Canon

Mynd: Getty Images

Barcelona tilkynnti í dag um komu Franck Kessie til félagsins. Kessie kemur til Barcelona frá AC Milan þar sem hann hefur spilað frá árinu 2017. Hann skoraði 39 mörk í 224 leikjum fyrir Milan.

Hann kom til Milan árið 2017 frá Atalanta en var fyrstu tvö tímabilin á láni. Hann er 25 ára miðjumaður og er frá Fílabeinsströndinni.
Kessie kemur á frjálsri sölu frá AC Milan og skrifar undir samning sem gildir fram á sumarið 2026. Hann hjálpaði Milan að landa sínum fyrsta deildartitli í ellefu ár í vor.

Tottenham vildi einnig fá Kessie í sínar raðir en hann ákvað í vetur að Barcelona yrði hans næsta félag á ferlinum. Í samningi hans er riftunarákvæði upp á 430 milljónir punda.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.