Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 04. júlí 2022 10:17
Elvar Geir Magnússon
Phillips með opið kveðjubréf til Leeds: Bestu stuðningsmenn heims
Kalvin Phillips.
Kalvin Phillips.
Mynd: Getty Images
Það er erfiður dagur fyrir marga stuðningsmenn Leeds United en búið er að staðfesta kaup Manchester City á enska miðjumanninum.

Phillips er í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum Leeds og hann hefur birt kveðjubréf á samfélagsmiðlum.

Phillips er 26 ára og fór í akademíuna hjá Leeds þegar hann var fjórtán ára og lék sinn fyrsta aðalliðsleik sautján ára gamall.

Í kveðjubréfinu fer Phillips lofsamlegum orðum um Marcelo Bielsa, fyrrum stjóra Leeds.

„Hann er maðurinn sem gaf félaginu líf. Þú gafst félaginu allt og gafst mér persónulega það sem ég þurfti til að vera einstaklingurinn sem ég er í dag, innan og utan vallar," segir Phillips.

Phillips lýkur kveðjubréfinu á að segja: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi."


Athugasemdir
banner
banner