Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   þri 04. september 2018 14:02
Magnús Már Einarsson
Byrjunarlið Íslands gegn Tékklandi: Sísí og Elín Metta inn
Icelandair
Elín Metta kemur inn í liðið.
Elín Metta kemur inn í liðið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Tékklandi klukkan 15:00 í síðasta leiknum í undankeppni HM.

Ísland þarf sigur til að komast í umspil þar sem spilað er í október og nóvember. Fjögur lið fara í umspil og berjast þar um eitt laust sæti á HM.

Elín Metta Jensen framherji Vals og Sigríður Lára Garðarsdóttir miðjumaður úr Lilleström koma inn í liðið síðan gegn Þýskalandi á laugardaginn.

Rakel Hönnudóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir detta út en sú fyrrnefnda fór af velli með krampa á laugardag og kastaði upp eftir leik í kjölfar þess að hafa fengið mígrenikast.

Smelltu hér til að sjá beina textalýsingu frá Laugardalsvelli

Byrjunarlið Íslands:
1. Guðbjörg Gunnarsdóttir (m)
2. Sif Atladóttir
4. Glódís Perla Viggósdóttir
5. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
6. Ingibjörg Sigurðardóttir
7. Sara Björk Gunnarsdóttir
8. Sigríður Lára Garðarsdóttir
10. Elín Metta Jensen
11. Hallbera Guðný Gísladóttir
15. Selma Sól Magnúsdóttir
23. Fanndís Friðriksdóttir
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner