Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   þri 04. september 2018 17:28
Hulda Mýrdal
Elín Metta: Þetta var víti
Icelandair
Elín í leiknum i dag.
Elín í leiknum i dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland gerði 1-1 jafntefli við Tékkland í lokaleik undankeppni HM 2019. Elín Metta spilaði allan leikinn í framlínu Íslands.

Lestu um leikinn: Ísland 1 -  1 Tékkland

Jafntefli dugar okkur ekki í umspil og niðurstaðan vonbrigði
"Já við ætluðum okkur miklu meira og ætluðum okkur að vinna þennan leik og það tókst ekki í dag. Það er mjög svekkjandi"

Ísland byrjaði leikinn mjög vel og fengu nokkur færi þangað til þær skoruðu. Hvað fannst þér klikka eftir það?

"Ég veit ekki hvort að það hafi eitthvað sett okkur út af laginu. Það getur vel verið. Mér fannst við samt ná að heimta aftur okkar krafta í seinni hálfleik og pressuðum vel á þær. Hefðum alveg getað sett mark eða mörk. Við vorum bara óheppnar. "

Ísland fékk víti til að vinna leikinn á lokamínútunni. Hvernig er að vera svona ótrúlega nálægt þessu?
"Algjörlega. Sara fór á punktinn og ég meina hún er það sterk að hún tekur þessu alveg. Svona er þetta bara stundum. Boltinn fer ekki inn!"
Í fyrri hálfleik var brotið á Elínu. Henni fannst það vera víti. " Já ég hérna reyni að framhjá markmanninum og mér finnst hún bara fara í mig þannig að ég myndi segja að þetta væri víti."

Það hefði getað breytt gangi leiksins ansi mikið "Já tvímælalaust. Það er stutt á milli í þessu".

Var eitthvað sem kom ykkur á óvart í leik þeirra? "Nei við höfum spilað á móti þeim áður. Það var búið að leikgreina þær vel og vissum alveg í hvaða svæði við áttum að leita. Við vissum að þær væru alveg að fara berjast og þær gerðu það svo það var ekkert sérstakt sem kom á óvart".

Nánar er rætt um leikinn við Elínu í spilaranum að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner