Arnór Ingvi Traustason er að sjálfsögðu í íslenska landsliðshópnum sem mætir Moldóvu og Albaníu í undankeppni EM 2020 í landsleikjahlénu.
Arnór Ingvi er lykilmaður í sterku liði Malmö sem stefnir á deildartitilinn í Svíþjóð.
„Við ætlum okkur að verða meistarar. Ég er að standa mig vel og er fullur sjálfstrausts, mér líður vel þarna," sagði Arnór og talaði svo um meiðsli sem hann varð fyrir fyrr í sumar.
Það vantar nokkra mikilvæga hlekki í íslenska landsliðinu fyrir næstu leiki og býst Arnór við því að fá að spila.
„Ég kem hérna inn og vil fá að spila. Ég kem ekki inn i þetta verkefni eins og einhver önnur verkefni. Ég vil fá að spila, þó maður auðvitað virði ákvörðun þjálfarans.
„Við eigum að vinna þessi lið og ætlum að gera það. Við þurfum að vera fókuseraðir og ekkert vanmat."
Athugasemdir