Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 04. september 2019 12:13
Magnús Már Einarsson
Bendtner treyjur uppseldar hjá FC Kaupmannahöfn
Bendtner í leik á Origo vellinum í fyrra.
Bendtner í leik á Origo vellinum í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danski framherjinn Nicklas Bendtner samdi á mánudaginn við FC Kaupmannahöfn í heimalandi sínu.

Bendtner kom til FC Kaupmannahöfn eftir tveggja ára dvöl hjá Rosenborg.

Þessi 31 árs gamli leikmaður samdi við FC Kaupmannahöfn til áramóta til að byrja með en algjört Bendtner æði er hjá stuðningsmönnum félagsins.

FC Kaupmannahöfn hefur nú greint frá því að allar treyjur félagsins séu uppseldar.

Stuðningsmenn kepptust við að kaupa treyjur með nafni Bendtner á og nú þarf að panta mun fleiri treyjur til að annast eftirspurn.

Bendtner gæti spilað sinn fyrsta leik með FC Kaupmannahöfn gegn Hobro þann 15. september.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner