Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 04. september 2019 13:30
Magnús Már Einarsson
Emre Can reiður: Ég skil þetta ekki
Mynd: Getty Images
„Ég er ekki í Meistaradeildarhópnum. Það var áfall fyrir mig að frétta þetta í gær mér var lofað öðru í síðustu viku," sagði Emre Can, miðjumaður Juventus, ósáttur í dag.

Can var ekki valinn í 22 manna hóp Juventus fyrir Meistaradeildina.

Juventus er með ansi marga miðjumenn í hópnum í ár en Adrien Rabiot og Aaron Ramsey bættust við hópinn í sumar.

„Ég hefði ekki viljað vera áfram hjá Juventus miðað við þetta því að aðalamarkmið mitt var að vera hluti af Meistaradeildarhópnum."

„Þetta er mikið áfallt fyrir mig og ég skil þetta ekki. Ég spilaði mjög vel í Meistaradeildinni í fyrra. Það hafa engar skýringar komið ennþá."

Athugasemdir
banner
banner
banner