Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 04. september 2019 09:00
Magnús Már Einarsson
Grace Rapp farin frá Selfossi í frönsku úrvalsdeildina
Grace Rapp.
Grace Rapp.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grace Rapp, leikmaður nýkrýndra bikarmeistara Selfoss í knattspyrnu, hefur samið við franska úrvalsdeildarliðið Stade de Reims og mun því ekki leika fleiri leiki með Selfyssingum í sumar en þetta kemur fram á Sunnlenska.is.

Rapp er bandarískur sóknarmaður en hún kom til Selfyssinga um mitt sumar í fyrra.

Rapp hefur verið í lykilhlutverki hjá Selfyssingum síðan þá en hún hefur spilað alla fimmtán leiki liðsins í Pepsi Max-deildinni og skorað fjögur mörk. Þá skoraði hún þrjú mörk í fjórum leikjum í leið Selfyssinga í átt að Mjólkurbikarnum.

Stade de Reims er nýliði í frönsku úrvalsdeildinni en liðið hefur leikið í neðri deildum undanfarin ár. Félagið var sigursælt á árum áður og varð meðal annars franskur meistari fimm sinnum á árunum 1975-1982.

Einni umferð er lokið í frönsku úrvalsdeildinni en Grace fær verðugt verkefni í sínum fyrsta leik fyrir félagið sem mætir Evrópumeisturum Lyon um næstu helgi.

Selfoss er í 3. sæti í Pepsi Max-deild kvenna en þrjár umferðir eru eftir af deildinni.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner