Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 04. september 2019 16:30
Arnar Daði Arnarsson
Hörður um hárgreiðslu Alberts: Hann fékk sér einn Hörð Björgvin
Albert á æfingunni í dag.
Albert á æfingunni í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Albert Guðmundsson vakti athygli fyrir nýja hárgreiðslu sína á æfingu íslenska landsliðsins í dag.

Albert er búinn að aflita á sér hárið og Hörður Björgvin Magnússon kom inn á greiðsluna í viðtali í dag. Hörður er sjálfur ljóshærður og fagnar framtaki Alberts.

„Hann fékk sér einn Hörð Björgvin. Ég spurði hann að því afhverju hann aflitaði ekki á sér hárið," sagði Hörður Björgvin um greiðsluna.

„Síðan mætir hann í gærkvöldi með þetta hár. Ég veit ekki hvort þetta sé ég eða eitthvað annað. Það er gaman að sjá annan ljóshærðan strák í landsliðinu."

Hér að neðan má sjá viðtölin við Albert og Hörð í dag.
Albert Guðmunds um nýju hárgreiðsluna: Þetta er endurskinsmerki
Hörður Björgvin: Skemmtilegt að vera aldursforsetinn
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner