Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 04. september 2019 20:32
Ívan Guðjón Baldursson
Kwame skoraði eina mark Síerra Leóne
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Líbería 3 - 1 Síerra Leóne
1-0 T. Tisdell ('18, víti)
1-1 Kwame Quee '56)
2-1 M. Sangare ('82, víti)
3-1 S. Johnson ('89)

Kwame Quee, framherji Breiðabliks sem er að láni hjá Víking R., lék allan leikinn er Líbería lagði Síerra Leóne að velli fyrr í dag.

Líbería komst yfir í fyrri hálfleik en Kwame jafnaði skömmu eftir leikhlé, með sínu fyrsta landsliðsmarki á ferlinum.

Staðan var jöfn þar til undir lokin þegar heimamenn kláruðu viðureignina með tveimur mörkum. Lokatölur því 3-1 og fer seinni lelikurinn fram í Síerra Leóne á sunnudaginn.

Leikurinn er þáttur í undankeppni Afríkuliða fyrir HM 2022.
Athugasemdir
banner
banner
banner