Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 04. september 2019 11:40
Magnús Már Einarsson
Laporte ekki meira með Manchester City á árinu?
Aymeric Laporte.
Aymeric Laporte.
Mynd: Getty Images
Aymeric Laporte, varnarmaður Manchester City, verður mögulega ekkert meira með liðinu á þessu ári.

Laporte meiddist á hné í 4-0 sigrinum á Brighton um helgina og var borinn af velli. Frakkinn fór í gær í aðgerð í Barcelona hjá hinum þekkta Dr Ramon Cugat.

Manchester City staðfesti í dag að aðgerðin hefði gengið vel en gaf ekkert út um það hvenær Laporte verður klár í slaginn á nýjan leik.

Samkvæmt fréttum frá Englandi er hins vegar tvísýnt hvort Laporte verði klár fyrir áramót og það er mikið áfall fyrir Manchester City.

Laporte hefur verið lykilmaður í vörn City en liðið mun nú treysta á að John Stones og Nicolas Otamendi spili í hjarta varnarinnar sem og miðjumaðurinn Fernandinho.

Athugasemdir
banner
banner
banner