Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   mið 04. september 2019 10:00
Elvar Geir Magnússon
Rúnar Alex: Kem alltaf með sama hugarfar inn í landsliðsverkefni
Icelandair
Rúnar Alex Rúnarsson.
Rúnar Alex Rúnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta eru leikir sem við þurfum sex stig úr til að koma okkur í enn betri stöðu en við erum í. Það kemur ekkert annað til greina," sagði Rúnar Alex Rúnarsson fyrir komandi leiki gegn Moldavíu g Albaníu.

Rúnar Alex hefur verið varamarkvörður hjá íslenska landsliðinu undanfarin ár á meðan Hannes Þór Halldórsson hefur verið aðalmarkvörður. Er Rúnar Alex bjartsýnn á að fá tækifæri í komandi verkefnum?

„Ég kem alltaf með sama hugarfar inn í landsliðsverkefni og það er að spila. Þjálfararnir velja síðan hverjir spila."

Rúnar Alex er fastamaður í liði Dijon sem hefur byrjað illa í frönsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.

„Við erum án stiga, búnir að skora eitt mark og fá okkur sex eða sjö. Þetta er ekki sérstök byrjun. Við höfum misst 11-12 leikmenn og þar af 7-8 úr byrjunarliðinu í fyrra. Við erum að pússla saman nýju liði og þetta tekur tíma. Það er ekkert panik ennþá en við þurfum að fara að safna stigum."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni en þar tjáir Rúnar Alex sig meðal annars um aukna samkeppni um markvarðarstöðuna hjá Dijon.
Athugasemdir
banner
banner
banner