Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
   mið 04. september 2019 13:00
Elvar Geir Magnússon
Samúel Kári: Hugurinn leitar í stærri deild
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er draumur að fá kallið aftur," segir Samúel Kári Friðjónsson, leikmaður Viking í Stafangri og íslenska landsliðsins. Samúel er í landsliðshópnum sem mætir Moldóvu og Albaníu.

Samúel spilar miðjuna úti en hefur verið notaður sem bakvörður hjá landsliðinu. Hvort lítur hann á sig sem miðjumann eða hægri bakvörð þegar hann kemur í landsliðsverkefni?

„Það er góð spurning, ég er að spila miðjuna úti og svo hef ég verið 'covera' bakvörðinn hérna. Það er allt opið," segir Samúel.

Samúel er hjá Viking á lánssamningi hjá Vålerenga en í lok ágúst bárust tilboð frá rússneskum félögum.

„Það komu tvö tilboð frá Rússlandi og eitt frá Skandinavíu. Það var komið frekar langt en svo gekk það ekki upp á endanum. Þessum þremur tilboðum var neitað og það er ekkert sem ég get gert í."

Hann viðurkennir að tilboðin hafi verið spennandi.

„Já algjörlega. Rússneska deildin er stór deild en maður ræður ekki við þetta. Hugurinn leitar auðvitað í stærri deild. Maður þarf bara að einbeita sér að því að spila vel."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner