Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mið 04. september 2019 14:00
Magnús Már Einarsson
Viðar: Þetta er algjör kóngur
Viðar Örn Kjartansson í leiknum gegn Albaníu í júní.
Viðar Örn Kjartansson í leiknum gegn Albaníu í júní.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Fyrsti mánuðurinn þarna hefur verið fínn. Ég er að spila og þeir hafa trú á mér," sagði framherjinn Viðar Örn Kjartansson við Fótbolta.net í dag en hann gekk í sumar til liðs við Rubin Kazan á láni frá Rostov.

Viðar Örn kom inn á sem varamaður gegn Andorra í mars og skoraði. Í júní byrjaði hann inn á sigrinum gegn Albaníu. Er hann bjartsýnn á að vera í byrjunarliðinu gegn Moldavíu á laugardaginn?

„Ég er alltaf klár í að byrja en við erum með frábæra framherja. Mér líður eins og ég sé aðeins nær liðinu en ég var. Frammistaða mín hefur batnað með árunum og ég er að spila meira. Ég er mun bjartsýnni núna en ég var fyrir einhverjum árum.".

Umtalaðasti Selfyssingurinn þessa dagana er fyrrum fótboltamaðurinn Valli Reynis en lag um hann hefur slegið í gegn að undanförnu. Valli er orðinn einn frægasti fótboltamaðurinn í sögu Selfyssinga þó ferli hans sé lokið fyrir löngu síðan.

„Hann á skilið að vera þarna. Það vissu ekki margir af honum fyrir utan Selfoss. Þetta er algjör kóngur. hann náði ekki alveg eins langt og hann hefði átt að ná (í fótboltanum) en þetta er toppmaður," sagði Viðar.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni en þar talar Viðar meira um landsleikina framundan sem og lið Rubin Kazan.
Athugasemdir
banner
banner
banner