Fotbolti.net
04.09.26 - 11:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spámaður

Dom Ankers spáir í 3. umferð ensku úrvalsdeildarinnar

 Dom Ankers, þjálfari kvennaliðs Gróttu.

Dom Ankers, þjálfari kvennaliðs Gróttu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Þriðja umferð ensku úrvalsdeildarinnar hefst í kvöld þegar Liverpool fer í heimsókn til nýliða Ipswich Town.

Englendingurinn Dom Ankers, þjálfari kvennaliðs Gróttu sem var að fara upp í Bestu deildina í fyrsta sinn, spáir í leikina að þessu sinni.

Ipswich 0 - 3 Liverpool (19:00 í kvöld)
Ipswich á í vandræðum með kantmenn Liverpool og Barcola lætur strax til sín taka. Það skilar Andoni Iraola sínum fyrsta sigri og gefur mér líka mont­réttindi á skrifstofunni gegn Paul, sem er mikill stuðningsmaður Ipswich.

Newcastle 2 - 1 Bournemouth (11:30 á morgun)
Endurkoma Elanga og Wissa á beinu brautina heldur áfram og Jaissle heldur áfram að heilla í Newcastle. Bróðir minn verður þá væntanlega líka aðeins glaðari enda mögulega enn von um að Newcastle geti átt gott tímabil.

Brentford 3 - 1 Sunderland (14:00 á morgun)
Verð að giska á Brentford hér. Liðið er sterkt á heimavelli og svo erum við hér á Íslandi auðvitað óopinber stuðningsmannaklúbbur Brentford.

Brighton 2 - 2 Leeds (14:00 á morgun)
Vanmetnasti leikur umferðarinnar að mínu mati. Ég held að þetta verði opinn leikur með fullt af færum á báða bóga, en að lokum þurfa bæði lið að sætta sig við eitt stig.

Fulham 1 - 1 Crystal Palace (14:00 á morgun)
Sem betur fer verða fullt af öðrum leikjum til að fylgjast með í laugardagsboltanum því ég á ekki von á því að þessi verði sérstaklega skemmtilegur. Bæði lið verða þó líklega sátt með að ná sínum fyrstu stigum tímabilsins undir stjórn nýrra þjálfara.

Man City 4 - 0 Coventry (14:00 á morgun)
Ég er mögulega að hugsa um að hoppa á Haaland þrefaldan fyrirliða-vagninn og því væri þrenna frá honum kærkomin. Sé ekkert annað en þægilegan sigur City og erfiðan dag á skrifstofunni fyrir Coventry.

Nottingham Forest 3 - 2 Tottenham (14:00 á morgun)
Við byrjum að sjá jákvæð merki frá nýju sóknarliði Tottenham sem kemst yfir snemma, en síðan tekur Glasner við stjórninni og meistaraframmistaða frá honum afhjúpar veikleika Tottenham og Forest tekur stigin þrjú í skemmtilegum leik.

Hull 0 - 1 Aston Villa (16:30 á morgun)
Annar leikur sem er líklega ekki ofarlega á áhorfslista flestra þessa helgina. Jackson skorar hins vegar eftir að hafa fengið þrjú stór færi og Villa nær að knýja fram sigur. Verður þar með fyrsta liðið sem sleppur við að verða étið af Tígrunum á þessu tímabili.

Everton 1 - 1 Man Utd (13:00 á sunnudag)
Moyes nær fram innri Neil Warnock sínum fyrir leik og segir leikmönnum sínum að njóta leiksins. En þeir eiga að njóta hans með því að vera agaðir. Það er næstum því nóg til að Everton vinni 1-0, en umdeild vítaspyrna sem Bruno Fernandes skorar úr á lokamínútunum rænir Everton stigunum þremur.

Arsenal 2 - 1 Chelsea (15:30 á sunnudag)
Besti leikurinn á pappír í þessari umferð, en líklega ekki jafn spennandi í raun og veru - eins og þessir leikir verða oft. Arsenal eru meistarar í því að vinna leiðinlega sigra og gera það aftur hér, líklega með að minnsta kosti einu marki eftir fast leikatriði.

Fyrri spámenn:
Stefan Ljubicic (6 réttir)
Gunni Birgis (5 réttir)
Bradley Barcola, nýr leikmaður Liverpool.

Bradley Barcola, nýr leikmaður Liverpool.

Canon

Mynd: Liverpool

Erling Haaland er líklegur til afreka í þessari umferð.

Erling Haaland er líklegur til afreka í þessari umferð.

Canon

Mynd: EPA

Bruno Fernandes.

Bruno Fernandes.

Canon

Mynd: EPA

Arsenal mætir Chelsea í stórleik umferðarinnar.

Arsenal mætir Chelsea í stórleik umferðarinnar.

Canon

Mynd: EPA

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City2+46
2Arsenal2+46
3Hull City2+36
4Chelsea2+26
5Brentford2+34
6Newcastle2+24
7Everton2+24
8Leeds2+14
9Brighton2+33
10Man Utd2+13
11Sunderland203
12Ipswich Town2-23
13Liverpool202
14Bournemouth2-11
15Nott. Forest2-11
16Fulham2-20
17Coventry2-40
18Crystal Palace2-50
19Aston Villa2-50
20Tottenham2-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.