Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 04. október 2019 15:26
Magnús Már Einarsson
1018 áhorfendur að meðaltali í sumar - Fjölgun frá síðustu árum
Flestir áhorfendur mættu á heimaleiki KR.
Flestir áhorfendur mættu á heimaleiki KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alls mættu 134.354 áhorfendur á leikina 132 í Pepsi Max deild karla 2019, sem gerir 1.018 manns að meðaltali á hvern leik.

858 mættu að meðaltali á síðasta ári, 838 árið 2017 og 975 árið 2016.

Flestir mættu á heimaleiki Íslandsmeistara KR, eða 1.623 að jafnaði, en alls voru 7 af félögunum 12 í deildinni með yfir eitt þúsund áhorfendur að meðaltali á sína heimaleiki.

Ellefta umferðin reyndist sú best sótta en meðalaðsóknin að leikjum þeirrar umferðar var 1.368. Alls var meðalaðsóknin yfir eitt þúsund í 14 umferðum af 22, en þó í aðeins einni umferð af síðustu sjö.

Félag Meðaltal
KR 1.623
Breiðablik 1.318
FH 1.206
Fylkir 1.141
Valur 1.110
ÍA 1.057
Stjarnan 1.026
Víkingur 982
HK 874
KA 819
Grindavík 579
ÍBV 479
Alls 1.018
Athugasemdir
banner
banner