Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 04. október 2019 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Colin Dagba hjá PSG til 2024
Dagba og Phil Foden á EM U21 árs í sumar.
Dagba og Phil Foden á EM U21 árs í sumar.
Mynd: Getty Images
PSG er búið að staðfesta að félagið hefur gert nýjan samning við bakvörðinn efnilega Colin Dagba.

Dagba þykir afar öflugur og byrjaði að spila fyrir aðallið PSG á síðustu leiktíð. Hann spilaði fjóra af fimm fyrstu leikjum tímabilsins en er búinn að vera frá vegna meiðsla síðan í september.

Dagba er 21 árs gamall og hefur spilað 26 leiki fyrir meistaraflokk PSG. Hann á 6 leiki að baki fyrir U21 landslið Frakka sem komu allir í ár.

Dagba er í baráttu við Thomas Meunier um byrjunarliðssæti. Belginn er þó að tapa í þeirri baráttu og hefur verið orðaður við brottför frá frönsku höfuðborginni.

Þá var markvörðurinn Garissone Innocent að framlengja til 2023. Hann er 19 ára gamall.
Athugasemdir
banner
banner