Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 04. október 2019 11:30
Magnús Már Einarsson
Dyche: Topp fimm skrýtnasti orðrómur sem ég hef heyrt
Jay Rodriguez.
Jay Rodriguez.
Mynd: Getty Images
Sean Dyche, stjóri Burnley, segist vera steinhissa á sögusögnum þess efnis að ítalska stórliðið Inter vilji fá framherjann Jay Rodriguez í sínar raðir.

Rodriguez kom til Burnley frá WBA á tíu milljónir punda í sumar en hann var óvænt orðaður við Inter í vikunni.

Dyche segir hins vegar ekkert til í þeim sögusögnum.

„Ég hef heyrt margar skrýtnar sögusagnir á tíma mínum hér og þessi fer í topp fimm," sagði Dyche um málið.

„Hann er nýkominn til okkar og ég veit ekki hvaðan þessar fréttir koma."
Athugasemdir
banner
banner
banner