Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 04. október 2019 14:26
Elvar Geir Magnússon
Guðjón Orri kveður Stjörnuna
Guðjón Orri Sigurjónsson.
Guðjón Orri Sigurjónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðjón Orri Sigurjónsson, sem verið hefur varamarkvörður Stjörnunnar, er án félags. Hann hefur yfirgefið Garðabæjarliðið.

Samningur Guðjóns var á enda.

Á Facebook segir Guðjón að erfitt sé að yfirgefa búningsklefa Stjörnunnar sem hefur að geyma algjöra toppmenn.

Hann segir það forréttindi að hafa fengið að spila fyrir Stjörnuna og að hann verði stuðningsmaður alla sína ævi.

Guðjón er 27 ára og spilaði tvo leiki í Pepsi Max-deildinni í sumar en hann var varamarkvörður fyrir Harald Björnsson.

Hann er uppalinn hjá ÍBV en hefur einnig leikið fyrir Selfoss.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner