Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 04. október 2019 14:15
Elvar Geir Magnússon
Hamren: Þurfum á Birki Má að halda núna
Icelandair
Birkir Már Sævarsson.
Birkir Már Sævarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birkir Már Sævarsson, bakvörður Vals, var ekki valinn í íslenska landsliðshópinn í síðasta glugga.

Hann var þó valinn í 25 manna landsliðshópinn sem er að fara að mæta Frakklandi og Andorra.

Erik Hamren segir að Birkir hafi alltaf verið á blaði hjá sér þó hann hafi kosið að velja aðra í síðasta hóp.

„Við þurfum á Birki að halda núna og það er ekkert furðulegt við að velja hann. Birkir er góður og reyndur leikmaður," sagði Hamren.

Ísland mætir Frakklandi næsta föstudag á Laugardalsvelli.
Athugasemdir
banner
banner
banner